Name:
Location: Iceland

Wednesday, January 04, 2006

Auk oss trú...

"Postularnir sögðu við Drottin: Auk oss trú!
En Drottinn sagði: Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn, gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjónum, og það mundi hlýða yður." (Lúk. 17, 5-6)

Elsku Drottinn....þakka þér fyrir hið undursamlega verk trúarinnar, sem þú vinnur í hjörtum og huga allra sem í einlægni leita þín og hlýða þínu orði og þínum boðum. Gef þú, góði Guð og frelsari minn, að fræ trúarinnar dvelji og dafni í mínu hjarta og beri ávöxt þér til dýrðar og samferðamönnum mínum til blessunar.
Helga mig í sannleikanum, þitt orð er sannleikur!

Í vetrarkulda og myrkri svarta
ég leggst til hvíldar við þitt elskandi hjarta
Mitt athvarf ert þú, mín gleði, mitt hrós,
í þínu ljósi sé ég ljós!

Góða Nótt! :-)