Name:
Location: Iceland

Friday, February 17, 2006

Vér biðjum þess....

Vér biðjum þess,
að þér mættuð fyllast þekkingu á vilja Guðs
með allri speki og skilningi andans,
svo að þér hegðið yður eins og Drottni er samboðið,
honum til þóknunar á allan hátt,
og fáið borið ávöxt í öllu góðu verki
og vaxið að þekkingu á Guði.
Mætti hann styrkja yður á allan hátt
með dýrðarmætti sínum,
svo að þér fyllist þolgæði í hvívetna
og umburðarlyndi
og getið með gleði þakkað föðurnum,
sem hefur gjört yður hæfa til að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.
Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins
og flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.
Kól. 1,9b-13